Ferðir í boði í Swakopmund

Fjöldinn allur af skipulögðum ferðum er í boði í Swakopmund. Þessar ferðir eru ekki innifaldar þarsem hver og einn hefur tækifæri til að velja sér ferð, nú eða eyða frjálsum tíma meðan á dvöl stendur í bænum. Hér segjum við frá ferðunum sem í boði verður, og fararstjóri tilbúinn að aðstoða við bókanir á staðnum.

Sandwich Harbor

Þetta er sú ferð sem við mælum helst með, það væri synd að missa af þessari upplifun meðan í Swakopmund og algjört uppáhald okkar hjá Obeo Afríku. Keyrt frá Swakopmund og í gegnum Walvis Bay er farið í Namib Naukluft garðinn á jeppum. Jepparnir keyra upp og niður sandöldurnar í miklu fjöri og farið á útsýnisstað þarsem horft er hvar sandöldur Namib eyðimerkurinnar mæta Atlantshafinu. Ógleymanleg sjón. Verðdæmi (með fyrirvara um breytingar): N$1800 á mann

Fallhlífastökk

Stokkið úr 10.000 feta hæð yfir elstu eyðimörk heims er frekar mögnuð upplifun. Obeo fjölskyldan hefur öll farið í fallhlífastökk og mælum eindregið með þessari einstöku upplifun á mögnuðum stað. Verðdæmi (með fyrirvara um breytingar): N$3000 á mann

Kameldýrabak

Hægt er að fara í 30 mínútna kameldýrabak þarsem rölt er um í sandöldunum bakvið Swakopmund.

Verðdæmi (með fyrirvara um breytingar): N$250 á mann

Fjórhjól

Hægt að velja úr 1 klst, 1.5 klst eða 2 klst Fjórhjólaferð um sandöldur Swakopmund

Verðdæmi 1 klst (með fyrirvara um breytingar): N$450 á mann

Hey there!Sunset