Margir vilja skipuleggja sérferð fyrir einungis parið, fjölskylduna eða vinina á hvaða dagsetningum sem henta þeim. Við bjóðum upp á skipulagningu einkaferða hvort sem er að keyra sjálf eða með innlendan bílstjóra. Að keyra í Namibíu er einstaklega öruggt, enda Namibía talið öruggasta land Afríku. Það er ekkert mál að leigja bíl og keyra um sjálfur með frelsið sem því fylgir. Við aðstoðum við að leigja bílinn og skipuleggja alla ferðina með gistingu, afþreyingu og öllu sem hentar ykkur.