Uganda - Górillur, Simpansar & Safari
Einstök upplifun í Úganda og hápunktur ferðarinnar er án efa fjallagórillan stórfenglega sem er í útrýmingarhættu. Í þessari ævintýraferð ætlum við að kynnast því besta sem Úganda hefur upp á að bjóða. Górillur, simpansar, safarí og miðbaugur. Fjölbreyttar safaríferðir eru innifaldar, þar á meðal eitt göngusafarí – upplifun sem þú gleymir seint. Ógleymanlegt tækifæri til að hitta górillur og simpansa í eigin heimkynnum þeirra.
Dagur 1 – Brottför
Dagur 2 – Koma til Úganda
Dagur 3 – Entebbe – bátsferð
Dagur 4 – Murchison Falls – nashyrningar
Dagur 5 – Murchison Falls – safarí & fossar
Dagur 6 – Kibale þjóðgarður
Dagur 7 – Kibale – simpansar
Dagur 8 – Queen Elizabeth þjóðgarður – ganga
Dagur 9 – Queen Elizabeth þjóðgarður – safari
Dagur 10 – Queen Elizabeth þjóðgarður – trjáljón
Dagur 11 – Bwindi þjóðgarður
Dagur 12 – Bwindi þjóðgarður – górillur
Dagur 13 – Bwindi þjógarður – frjáls
Dagur 14 – Lake Mburo þjóðgarður – safarí
Dagur 15 – Lake Mburo þjóðgarður – safarí
Dagur 16 – Miðbaugur og brottför
Dagur 17 – Heimkoma

Dagur 2 - Komið til Uganda
Velkomin til Úganda!
Við komu til Entebbe höldum við beint á hótelið í útjaðri borgarinnar til hvíldar eftir langt ferðalag.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
K
|
7 km | u.þ.b. 15 mín
|
|
Dagur 3 - Entebbe
Í dag skoðum við Mabamba-votlendið og grasagarðinn í Entebbe. Votlendið í Mabamba Bay er 100 ferkílómetrar að stærð. Hér vonumst við til að sjá einstakan fugl, skónef, sem sést helst í Úganda, Rúanda, Suður-Súdan og Sambíu. Skónefur er stór fugl, um 120 cm á hæð. Fullorðnir fuglar eru frá 5,5 til 5,8 kg og hafa rúmlega 230 cm vænghaf. Goggurinn á skónefnum er afar mikilfenglegur, hann er um 20 cm á lengd og næstum því jafn breiður þar sem hann er mestur um sig. Skónefurinn er því sennilega með stærstan gogg allra núlifandi fugla. Í bátsferð okkar um svæðið getum við búist við að rekast á þennan merkilega fugl, ásamt fjölda annarra fuglategunda.
Eftir hádegi förum við í heimsókn í grasagarðinn í Entebbe.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Bátsferð & heimsókn í grasagarðinn
|
Dagur 4 - Murchison Falls
Frá Entebbe ökum við í Murchison Falls-þjóðgarðinn með viðkomu í Ziwa Rhino Sanctuary, verndarsvæði fyrir nashyrninga.
Murchison Falls-þjóðgarðurinn er einn merkasti og stærsti þjóðgarður Úganda.
Þar til fyrir um 35 árum var Murchison Falls-þjóðgarðurinn heimili hvítra og svartra nashyrninga, en vegna umfangsmikilla veiða hurfu þessi dýr á svæðinu. Samtökin Rhino Fund Uganda voru stofnuð árið 1998 sem liður í markvissri stefnu Úganda til að vernda nashyrninga. Vegna þessa starfs lifa nashyrningar vernduðu lífi á svæðinu og íbúar Úganda fá mikla fræðslu um dýr í útrýmingarhættu.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
355 km | u.þ.b. 6,5 klst. akstur
|
Ziwa verndarsvæði
|
Dagur 5 - Murchison Falls
Um morguninn förum við í safarí og getum átt von á að sjá ljón, gíraffa, buffla, fíla ásamt fjölda fugla. Yfir 450 fuglategundir finnast í þjóðgarðinum.
Garðurinn er kenndur við Murchison-fossana í Níl. Þar steypist lengsta fljót heims með miklum gný í gegnum sjö metra breitt gljúfur niður í hyl 43 metrum neðar. Regnbogi myndast oft í úðanum frá beljandi fossunum. Fyrir neðan róast fljótið og þar ráða flóðhestar og Nílarkrókódílar ríkjum.
Nílarfljót fleytti kókóshnetum til þjóðgarðsins frá öðrum stöðum í Afríku, þannig að mörg pálmatré prýða svæðið. Þessi bakgrunnur, ásamt miklum fjölda dýra og fugla býður upp á einstakt tækifæri til ljósmyndunar.
Eftir hádegi er svo haldið í bátsferð á Níl.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Safarí, sigling á Níl og ganga að fossunum
|
Dagur 6 - Kibale
Í dag ökum við í Kibale-þjóðgarðinn.
80% af flatarmáli Kibale eru þakin sígrænum laufskógum. Þetta stóra skógarflæmi er kjörið búsvæði fyrir apa og þar lifa m.a. rúmlega 1.200 simpansar . Ef heppnin er með okkur gætum við einnig rekist á rauðan colobus-apa sem og L’Hoest’s-apa, tegund rófulangra skógarapa. Við skoðum Kibale-þjóðgarðinn á morgun, en í dag er akstursdagur.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
360 km | u.þ.b. 7 klst. akstur
|
|
Dagur 7 - Kibale
Um morguninn förum við í náttúrugöngu um Bigodi-svæðið. Hér göngum við í gegnum beitilönd, lítil þorp, te-plantekrur og annars konar tilkomumikið landslag. Heimamenn eru einstaklega vingjarnlegir og viðbúið er að þeir veifi okkur ákaft. Miklar líkur eru á að mismunandi tegundir apa verði á vegi okkar.
Eftir hádegi er síðan haldið í spennandi leit að simpönsum. Kibale-þjóðgarðurinn er á meðal þeirra svæða í heiminum þar sem fjöldi prímata er mestur. Þar eru þrettán tegundir prímata, þeirra á meðal ættingjar okkar, simpansarnir.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Náttúruganga & safarí í leit að simpönsum
|
Dagur 8 - Queen Elizabeth þjóðgarður
Um morguninn förum við í gönguferð um Fort Portal-svæðið.
Eftir hádegi kveðjum við Kibale og ökum í Queen Elizabeth-þjóðgarðinn. Mikið dýralíf er í þjóðgarðinum; þar má sjá antilópur, vörtusvín, ljón, flóðhesta, fíla, buffla og fjölmörg önnur dýr.
Eftir akstur dagsins slökum við á fyrir ævintýri morgundagsins.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
88 km | u.þ.b. 2,5 klst. akstur
|
Ganga um Fort Portal
|
Dagur 9 - Queen Elizabeth þjóðgarður
Við byrjum morguninn á safarí. Um að gera að hafa myndavélarnar tilbúnar því við vonumst til að sjá fjölbreytt dýralíf í þjóðgarðinum.
Við snúum til baka á gististað okkar fyrir hádegi, snæðum hádegisverð og slökum á áður en við höldum í bátsferð um Kazinga-sund. Það að upplifa safarí í bát er skemmtileg tilbreyting frá safaríferð í bíl – í siglingunni getum við vænst þess að sjá fjöldann allan af flóðhestum og öðrum dýrategundum sem una sér vel í vatninu eða við það.
Sundið sem við siglum um tengir Játvarðsvatn og Georgsvatn.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Safarí á landi & í bát
|
Dagur 10 - Queen Elizabeth (Ishasha)
Þegar við heyrum talað um trjáklifrandi kattardýr hugsum við auðvitað um hlébarða. Ljón eru ekki vön að klifra í trjám, ekki frekar en blettatígrar, en hér í Ishasha er hægt að finna trjáklifrandi ljón!
Við njótum dagsins í safaríferð í leit að þessum áhugaverðu trjáljónum!

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
75 km | u.þ.b. 2 klst. akstur
|
Safarí
|
Dagur 11 - Bwindi
Í dag ferðumst við í þekktan þjóðgarð, Bwindi. Hér förum við í leit að fjallagórillunum víðfrægu.
Þetta er akstursdagur en okkur leiðist ekki því að leiðin er einstaklega falleg, ekið er framhjá bananaekrum, vötnum, eyjum og regnskógum. Eftir komu í búðirnar er kjörið að slaka vel á fyrir stóra daginn á morgun.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
155 km | u.þ.b. 5 klst. akstur (erfiðir vegir)
|
|
Dagur 12 - Bwindi
Þetta er dagurinn sem við biðum eftir! Nú skulum við heimsækja fjallagórillurnar rómuðu í Úganda. Flestir gestir telja þetta hápunkt Úgandaferðarinnar og fyrir því er ærin ástæða. Í ferð dagsins fylgjum við landvörðum inn í Bwindi-frumskóginn í þeirri von að sjá þessi mögnuðu dýr. Við getum ekki lofað því að finna górillufjölskyldu, en sjaldgæft er að það takist ekki. Suma daga þurfa gestirnir einungis að ganga örstuttan spöl áður en þeir rekast á górillufjölskyldu en aðra daga þarf aðeins lengri göngu, svo búið ykkur undir ævintýri og sjáum hversu vel okkur gengur. Að hitta górillufjölskyldu, sjálf fótgangandi, inni í afrískum frumskógi er ævintýraleg upplifun sem engin leið er að lýsa í orðum.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M. H, K
|
|
Górillur í Bwindi
|
Dagur 13 - Chameleon Hill frjáls dagur
Í dag er frjáls dagur því að gististaður okkar býður upp á ótrúlegt úrval ævintýra. Það er undir hverjum og einum komið hvort þið nýtið tímann í slökun eftir ævintýri fyrri daga, eða skellið ykkur í einhverja af hinum ýmsu ferðum sem í boði verða fyrir áhugasama. Það verður til dæmis hægt að fara í göngu í leit að apategundinni „gullna markettinum”, fara í skipulagða gönguferð, hjólaferð, klífa eldfjall, sigla í bát, kanó eða kajak, fara í alls konar menningarferðir og margt fleira! Það verður líklegast erfitt að velja úr.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Valfrjálst
|
Dagur 14 - Lake Mburo
Í dag ökum við í Lake Mburo-þjóðgarðinn sem er vel þess virði að heimsækja. Í þjóðgarðinum er einstakt dýralíf, til dæmis er hægt að sjá eland-antílópur – stærstu antilópu Afríku.
Eftir komu í búðirnar slökum við aðeins á áður en haldið er í safarí í leit að hinum ýmsu dýrum Afríku í Mburo.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
300 km | u.þ.b. 6,5 klst. akstur
|
Safari
|
Dagur 15 - Lake Mburo
Nú gefst enn eitt tækifærið til að upplifa eitthvað nýtt í þessari ævintýraferð. Eftir morgunverð förum við í safarí, en ólíkt þeim sem við höfum farið í hingað til förum við fótgangandi!
Það er allt önnur tilfinning að upplifa náttúru Afríku fótgangandi en í bíl, í von um að rekast á áhugaverð dýr sem lifa á þessum slóðum, allt gert undir vernd landvarða okkar sem vita nákvæmlega hvað þau eru að gera. Fyrir þá sem hafa áhuga verður síðan í boði að fara í annað safarí (í bíl) eftir hádegi.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
2 x safarí. Eitt göngusafarí og annað í bíl.
|
Dagur 16 - Miðbaugur & Brottför
Því miður er komið að því að kveðja Afríku. Á leið okkar frá Lake Mburo til Entebbe verður stoppað við miðbaug þar sem allir geta tekið myndir.
Síðan er haldið til Entebbe-flugvallar fyrir brottför til Íslands.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
|
M, H
|
265 km | u.þ.b. 5 klst. akstur
|
|