Obeo Afríka er fjölskyldurekið fyrirtæki í eigu Íslendinga staðsett í Oslo, Noregi. Við stofnuðum fyrirtæki okkar, Obeo Travel, snemma árs 2016 og höfum síðan skipulagt og ferðast með fjöldann allan af gestum til Afríku. Með Obeo Afríku viljum við bjóða hágæðaferðir á framandi slóðir Afríku til Íslendinga.


Afríka er “heima”

Fjölskyldan bjó í Namibíu á árunum 1990 – 1996 og lifði ótrúlega fjölbreyttu, spennandi og góðu lífi í þessu framandi landi. Að lokinni dvöl okkar var ákveðið að keyra upp endilanga Afríku sem tók 8 mánuði og keyrðum við í gegnum 18 lönd í Afríku. Það er eitthvað svo sérstakt við þessa heimsálfu að hún tekur taumhald á hjarta þínu. Við heimsóttum Namibíu aftur jólin 2015 og þá var ekki aftur snúið. Rannveig fann að hér átti hún heima, og aðeins ári seinna stofnuðum við fyrirtæki sem skipuleggur gæða ferðir til Namibíu. Það hefur gengið vonum framar, enda þekkjum við vel til og vitum hvað heillar gesti okkar. Allar okkar ferðir eru vel skipulagðar þar sem við höfum sjálf skoðað svæðin, gististaðina og allt sem þarf til að veita þá þjónustu sem við viljum veita gestum okkar. Allar okkar ferðir miðast að því að þú, sem gestur okkar, missir ekki af neinu sem er þess virði að heimsækja. Ferðir okkar eru skipulagðar svo að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu, við sjáum um að þú upplifir þá bestu Afríku reynslu sem þú gætir hugsað þér. Birna og Rannveig skiptast á að fararstýra öllum ferðum, og lofum við að leggja okkur fram í hvert skipti og veita þér bestu ferðir lífs þíns.


Teymið

Rannveig Snorradóttir

Skrifstofa & Fararstjóri

Ég tel það mikla gæfu að stjúpfaðir minn fór að vinna í Namibíu og heila fjölskyldan flutti þangað frá 1990 – 1996. Ég var einungis 6 ára þegar við fluttum og átti hina allra bestu æsku þar, fram að 12 ára aldri þegar fjölskyldan keyrði upp endilanga Afríku á 8 mánuðum heim. Ég hef alltaf sagt að ég skildi hjarta mitt eftir í Afríku, og það er ekki að furða enda ótrúleg heimsálfa. Með endalausa menningu, dýralíf, ævintýri og landslag þá eru ferðalög þangað sannkallað himnaríki á jörðu. Ég nýti hvern frítíma minn til að ferðast um Afríku, koma mér fyrir heima í Swakopmund í einhvern tíma og ekki síst fararstýra íslenskum hópum í Namibíu sem er líklega það skemmtilegasta og mest gefandi verkefni sem ég tek mér fyrir hendur.

Birna Guðbjörg Hauksdóttir

Fararstjóri og skipuleggjandi Afríkuferða

Ég bjó með fjölskyldu minni í Namibíu í mörg ár, ferðaðist mikið um þar og nágrannalöndin og endaði Namibíu dvölina með að keyra í gegnum Afríku til Evrópu, 8 mánaða ferðalag.  Ég heillaðist af Namibíu og sunnanverðri Afríku og finnst fátt skemmtilegra en að fá að kynna þessi lönd til ævintýra- og fróðleiksþyrstra ferðalanga. Dags daglega vinn ég hjá Háskólanum í Osló sem sérfræðingur í upplýsingatækni. Ég hef búið í Osló ásamt fjölskyldu síðustu 11 árin og unum við okkur vel þar, enda Noregur þekktur fyrir gott og fjölskylduvænt samfélag.

Johann Van Niekerk

Skrifstofa

Starfsmaður Obeo Afríku í Swakopmund, Namibíu. Þýddur texti:

Ég er fæddur og uppalinn í Namibíu. Ég fór í flugnám í Suður Afríku og fekk þar mitt flugleyfi. Þegar ég kom til baka til Namibíu hóf ég starfsferil minn í flugi innan Namibíu, Botswana og Zimbabwe. Fyrirtækið sem ég starfaði hjá sérhæfði sig í lúxus flug ferðum og fekk ég því tækifæri til að upplifa alla gististaði og áfangastaði landanna. Ég kynntist síðan Obeo meðan þau voru á ferð um Namibíu og þar hófst allt. Ég var orðinn partur af Obeo fjölskyldunni. Ég er staddur í Swakopmund og skipulegg allar ferðir með Obeo teyminu, ásamt því að vera til staðar allan sólahringinn fyrir okkar gesti, og flýg sjálfur með gestum okkar þegar á við. Líklegt er að þú munir rekast á mig í heimabæ mínum eða á flugvellinum þegar þú kemur til fallega landsins míns. “Sien julle binnekort”, sem er móðurmál mitt, Afrikaans, og þýðir “Sjáumst fljótlega”

David Botha

Skrifstofa

Starfsmaður Obeo Afríku í Swakopmund, Namibíu. Þýddur texti:

Ég er fæddur og uppalinn í Suður Afríku. Ég hóf starfsferil minn í ferðaþjónustu árið 2010, 2 árum síðar gafst mér tækifæri í Namibíu og ég flutti hingað. Ég hef búið í Namibíu síðan þá og upplifað öll svæði landsins og hvað það hefur að bjóða. Nú er Namibía heima fyrir mér. Namibía var eitt af fyrstu áfangastöðunum sem við buðum viðskiptavinum okkar en þarsem systir mín býr í Livingstone, Zambíu, hef ég fengið mörg tækifæri til að ferðast innan Zambíu sem og Zimbabwe. Með mikla þekkingu í sunnarlegri Afríku er það mér sönn ánægja að skipuleggja ferðir í þessum spennandi löndum

Stefán Haukur Friðriksson

Sölustjóri

Sæl veriði, Stefán heiti ég og vinn sem sölustjóri hjá Obeo. Ég er ekki alveg viss um hvernig mér var afhendað þessari stöðu en ég kvarta ekki og vona bara að yfirmenn mínir átta sig ekki á mistökunum. Fæddur á Íslandi, en eyddi fyrstu 6 árunum mínum í Namibíu. Ég tel mig vera mjög heppinn að hafa fengið að upplifa þetta framandi land á svona ungum aldri, og get oftast ekki beðið eftir að komast til baka. Í dag bý ég með fjölskyldu minni í sveitinni á Íslandi. Ég er oftast með fótinn hálfan í Namibíu, og nýt þau tækifæri sem ég get til að skoða landið betur og betur. Þótt að ég hafi komið þangað oft áður, þá er alltaf eitthvað nýtt að sjá.

Margrét Marsibil Friðriksdóttir

Skrifstofa

Sem 19 ára stelpa er ég rosa heppin að hafa ferðast um allan heim. Enn enginn staður heillaði mig jafn mikið og Namibía gerði þegar ég fór þangað með fjölskyldunni jólin 2015. Mér fannst Namibía svo æðisleg að ég ákvað að flytja þangað í 4 mánuði til þess að vinna og ferðast. Landið heillaði mig með sandöldum, dýralífi, ævintýrum og fólkinu. Ég var líka svo heppin að fá að heimsækja Cape Town í Janúar 2020 og þessi borg var eins og engin önnur. Það er eitthvað fyrir hvern og einn þarna, menning, fjöll, verslanir og ekki minnst, mörgæsir!

Þröstur Eiríksson

Ljósmyndari með meiru

Frístunda ljósmyndari hvenær sem tækifæri gefst, annars í fullri vinnu sem net- og öryggissérfræðingur hjá DNV-GL í Noregi. Ég hef unnið í upplýsingatækni síðustu 30 árin, en notað flestar frístrundir síðustu árin við ljósmyndatöku og úrvinnslu. Ég er aðal ljósmyndari Obeo Afríku,  sem mér finnst ekki leiðinlegt starf þar sem ég hef fengið einstök tækifæri að ferðast um Afríku. Ég hef alla tíð ferðast mikið vegna vinnu minnar, en Afríka heillar mig, sérstaklega Namibía með sína ægifegurð, andstæður, fjölbreytni og menningu.

Hér er linkur á myndasíðu mína: https://www.the-photos.net/ 

Hafðu Samband





    UMSAGNIR

    Við komum heim eftir 19 daga ferð til Namibíu með brosið fast allan hringinn. Fádæma fallegt land, auðugt af fjölbreyttu dýralífi og ómetanlegt að upplifa það að sitja í nokkurra metra fjarlægð frá stærstu og hættulegustu rándýrum heims, sjá fíla, nashyrninga, krókódíla og flóðhesta sinna sínum málum í náttúrulegu umhverfi þeirra er bara ógleymanlegt. Menning þjóðflokkanna og fólkið sem við fengum að sjá og kynnast lítillega var heillandi og fengur að fá tækifæri til að heimsækja. Fararstjórinn okkar, hún Birna, þekkti land og þjóð frá því hún bjó þar um árabil og miðlaði af þekkingu sinni og reynslu. Henni til halds og trausts var síðan innlendi leiðsögumaðurinn og bílstjórinn sem sem vann hug og hjörtu allra í hópnum með viðmóti sínu og þekkingu á landi sínu og þjóð. Við fórum víða um Namibíu og gistum á sérbúnum gististöðum/hótelum inni á verndarsvæðum fyrir dýralíf. Aðbúnaður þar, þjónusta og þjónustulund var með því besta sem við höfum upplifað á ferðalögum og maturinn hreint afbragð. Árni E. Albertsson og Elínrós Eiríksdóttir

    Við hjónin fórum með Obeo Afrika til Namibíu 2022 og í 4ra landa ferðina árið 2024. Við getum heils hugar mælt með báðum þessum ferðum. Skipulag þeirra var einstaklega gott, gististaðir gaumgæfilega valdir og fararstjórarnir dásamlegir. Mikill kostur að nánast allt uppihald var innifalið í verði ferðanna og að ferðast var í litlum hópum. Við eigum stórkostlegar minningar úr ferðunum tveimur og munum fylgjast spennt með nýjum ferðum í boði Obeo Afika. Dóróþea og Viðar, Dalvík

    Við mamma (Hulda Vilhjálmsdóttir) fórum í Namibíuferð með Birnu í febrúar 2019. Það var algjör draumaferð. Mikið að skoða en líka tími til að njóta staðanna, lítill og frábærlega góður hópur. Glæsilegir gististaðir og öll þjónusta til fyrirmyndar.

    Ég get heilshugar mælt með þessari ferð og væri alveg til í að fara aftur eða í aðra sambærilega með Obeo.

    Hjartans þakkir fyrir ógleymanlega ferð.

    Guðrún Eggertsdóttir

    Namibíuferðin sem við Hilmar fórum stóð frá 15.febr. til 2. mars 2019.  Lítill hópur en alveg einstaklega góður. Birna Guðbjörg Hauksdóttir var fararstjóri, fræðandi og skemmtileg. Allt skipulag var til fyrirmyndar, sama hvort við tölum um gistingu eða mat. Við vorum með sama bíl og bílstjóra alla ferðina, nema þegar farið var í ferðir þar sem við þurftum að vera á sérútbúnum bílum.  Namibía er land andstæðna, gróður og gróðurlausar saltsléttur, sandur og trjágróður til skiptis. Dýralífið er mjög fjölbreytt, stundum  sáum við dýrin við vatnsból, eitt af því eftirminnilegasta var að sjá fílahjörð koma þrammandi að vatnsbóli. Gististaðirnir eru líka eftirminnilegir, til dæmis þar sem starfsfólkið tók á móti okkur með söng eða þar sem þau kenndu okkur að læsa húsunum, læsingin var krókur og kengur.  Eða að heyra clic málið eða…..

    Mér finnst við vera mjög heppin að hafa farið í þessa ferð.

    Guðrún og Hilmar.

    Ógleymanleg ferð til Namibíu, náttúrufegurðin kom verulega á óvart, dýralífið er stórfenglegt og mannlífið fjölbreytt. Maturinn er alveg meiriháttar og allur aðbúnaður á gististöðum mun betri en við eigum að venjast! (Og klósettaðstaða alls staðar fín, meira að segja á vegasjoppum!) Obeo á heiður skilið fyrir frábært skipulag og fararstjórn, takk, takk, Birna og fleiri. Við fengum mjög góða yfirsýn yfir menningu og sögu heimamanna. 13 þjóðarbrot búa í Namibíu og tungumálin eru 11 þó svo að enska sé hið opinbera tungumál sem kennt er í skólum. Allir eru stoltir af landi og þjóð og ákafir í að fræða hinn fávísa ferðamann. Alls staðar var tekið á móti okkur með brosi á vör þó svo að fátæktin væri víða átakanleg. Það rigndi hressilega á meðan ferð okkar stóð og allar eyðimerkur og sléttur voru óvenju grænar. Árfarvegurinn í Swakobmund fylltist af vatni en það hafði ekki gerst í 11 ár!
    Erum í skýjunum yfir að hafa uppgötvað og upplifað Afríku
    Erna

    Ég veit ekki alveg hvar skal byrjað en ég er í 7 unda himni með þessa ferð. Það var allt sem gerði þessa ferð að því sem hún varð. Ferðafélagar dásamlegir, landið guðdómlegt, maturinn góður, gistingin stundum óraunveruleg ( hélt grínlaust að það yrði prins á koddanum í hinu rúminu næst þegar ég kæmi inn) , fallhlífastökkið geggjað og svo Rannveig mín þú gerðir ferðina að því sem hún varð, þ.e ÓGLEYMANLEG
    Ég er orðin áskrifandi af ferðum ykkar
    Kærleikskveðja og fullt af þakklæti
    Sigurveig Björgólfs

    Ég var búin að skoða margar leiðir til að ferðast til Afríku þegar ég datt niður á Obeo, bókaði með þeim og sé alls ekki eftir því. Ferðin var frábærlega skipulögð og hver dagur eins og galdrar! Passað vel upp á alla og endalausir möguleikar til að verja frjálsum tíma. Hefði ekki getað huxað mér betri leið til að kynnast Afríku. Sjáumst fljótt 🙂 Árdís Bj. Jónsdóttir

    Við Valur erum varla komin niður úr skýjunum ennþá og erum sammála um að ferðin öll hafi verið alveg frábær. Fyrst vil ég nefna einstaklega heillandi land, góða skipulagningu, skemmtilega gististaði og góðan mat og ekki má gleyma bílstjóranum okkar ljúfa. Rannveigu þökkum við fyrir að passa uppá okkur og gera ferðina ógleymanlega. Kristín Emilía Daníelsdóttir

    Hvað get ég sagt? Ógleymanleg ferð til Namibíu, skemmtilegur hópur og leiðsögnin og skipulagningin algerlega frábær. Þessari ferð mun ég aldrei gleyma. Sjö stjörnum af fimm 🌞😎

    Takk fyrir æðislega ferð. Namibía var fyrir mér ævintýralegur staður. Ég virkilega heillaðist af landinu og það stóðst allar mínar væntingar og meira til. Ég er sannfærð um að hafa valið bestu Namibíu-ferðina. Frábær upplifun í vel skipulagðri ferð! Anna Dóra

    Við fórum í ferð til Namibíu og síðar til Tanzaníu. Hreint frábærar ferðir. Ferðatilhögun fararstjórn og gististaðir eins og best var á kosið. Var ferðin dýr er spurt. Nei við fengum mikið fyrir peningana, mjög mikið. Viljum eiginlega bara ferðast með Obeo Africa. Takk. Guðmundur Benediktsson, Ingibjörg Faaberg

    Það er margt hægt að segja um Namibíu. Dularfull, aðlaðandi, ógnvekjandi, spennandi, draumkennd, seiðmögnuð, tröllsleg, en umfram allt stórkostleg. Jóhann Sigurólason