Hér er að finna nánari upplýsingar um gististaði Obeo Afríku. Við leggjum mikla vinnu í að handvelja gististaði okkar, og keppumst við að prófa alla gististaði sjálf, áður en við bjóðum gesti okkar velkomna. Gististaðir eru sannarlega stór partur af upplifun ferðar ykkar til Afríku og því vöndum við valið vel.

Toshari


Etosha vestur


Veitingastaður

Sundlaug

Bar

Safari ferðir inn í Etosha

 


Toshari búðirnar eru staðsettar rétt suður við Etosha hliðið. Búðirnar bjóða upp á tvær sundlaugar, góðan veitingastað og frábæra þjónustu. Toshari hefur eina aðal byggingu sem býður upp á alla þjónustu, og herbergin eru dreifð um svæðið fyrir gott næði eftir mikil ævintýri í kringum þjóðgarðinn. 

Frans Indongo Lodge


Otjiwarongo


Loftkæling

Ísskápur

Hárþurrka

Hraðsuðuketill

Sundlaug

Veitingastaður og bar


Búðirnar eru byggður úr náttúrulegum efnum svo sem náttúrusteini, tré og reyr sem notuð voru til að byggja hús í Ovambo ættkvíslunum. Hlutir til daglegrar notkunar í Ovambo ættkvíslinni (til dæmi leirpottar, geymslukörfur og upprunalegar trétsyttur) þjóna sem skraut til að leggja áherslu á afríska þemað – og veita búðunum mjög sérstakan sjarma.  

Heja Lodge


Windhoek


Loftkæling

Wifi

Sundlaug

Veitingastaður & Bar

Afþreying


Heja Game Lodge er staðsett austan við Windhoek, 1900 metra hæð yfir sjávarmáli, og er lokað af Auas-fjöllum í suðri og Khomas Hochland og Eros-fjöllum í norðri og vestri.

Etosha Village


Etosha


Loftkæling

Sundlaug

Veitingastaður

Bar

Safari


Etosha Village sameinar á einstakan hátt hagkvæmni og þægindi og skilar fullkominni upplifun í safaristíl í einkareknu og vernduðu friðlandi rétt við Etosha þjóðgarðinn.

Old Traders Lodge


Erindi


Vatnsból

Sundlaug

Veitingastaður og bar

Safari ferðir

Loftkæling


Old Traders búðirnar í Erindi eru í miklu uppáhaldi hjá okkur, sérstaklega vegna mikils vatnsbóls sem liggur við búðirnar sjálfar. Það jafnast fátt við það að sitja í kvöld kyrrðinni og fylgjast með dýralífi koma og fá sér að drekka.

Victoria Safari Lodge


Viktoríu Fossar, Zimbabwe


Veitingastaður, bar, sundlaug, líkamsrækt, vatnsból, loftkæling


Þetta marg verðlaunaða hótel finnst á flötum tindi aðeins 4 km frá Viktoríu fossunum í Simbabve (Zimbabwe), umkringt ótamdri náttúru Afríku. Victoria Falls Safari Lodge mun bjóða upp á ógleymanlegri upplifun.

Mowana Safari Resort


Chobe, Botswana


Veitingastaður, bar, sundlaug, golfvöllur, heitur pottur, hárgreiðslustofa


Cresta Mowana liggur við bakka Chobe fljótsinsþar sem fjögur lönd deila landamærum sínum, Botsvana, Simbabve, Namibía, og Sambía. Þar mætast einnig Chobe og Zambezi fljótin.

Namushasha River Lodge


Namushasha, Namibíu


Veitingastaður, bar, sundlaug


Namushasha Lodge er staðsett við Zambezi fljótið. Þar er hægt að njóta mikils dýralífs, fílar og flóðhestar ráfa um svæðið ásamt fjölda annarra dýrategunda og einstaklega mikið fuglalíf er á svæðinu.

Divava Lodge


Divundu, Namibíu


Loftkæling, heilsulind, sundlaug, veitingastaður, bar


Divava Lodge eru lúxus búðir sem liggja við bakka Okavango fljótsins. Hvert herbergi, er í afrískum stíl og býður uppá verönd með útsýni yfir fljótið og dýralíf svæðisins.

Crocodile Camp


Maun, Botswana


Veitingastaður, sundlaug, internet, heilsulind


Crocodile Camp Safari & Spa er staðsett við bakka Thamalakane árinnar í Maun Botswana. Þetta eru frábærar búðir fyrir aðgengi að dýralífi svæðisins, með auðvelt aðgengi inn í Moremi þjóðgarðinn.

Commodore Cape Town


Höfðaborg, Suður Afríku


Heilsulind, sundlaug, internet, veitingastaður, bar, líkamsrækt


Commodore Hótel í Höfðaborg er staðsett við Victoria & Alfred Waterfront, með útsýni yfir Borðfjall (Table Mountain), höfnina og Robben Island.
Commodore býður gæða þjónustu á einum besta stað Höfðaborgar.

Otjiwa


Otjiwa, Namibíu


Loftkæling, sjónvarp, eigin pallur við hvert herbergi, sundlaug, veitingastaður, bar, afþreying


Otjiwa hefur unnið hjörtu okkar frá upphafi. Það er sérstakt dýralíf að finna á þessu svæði og gæði búðanna frábær, ásamt vinalegu starfsfólki.

Hafðu Samband





    UMSAGNIR

    Við mamma (Hulda Vilhjálmsdóttir) fórum í Namibíuferð með Birnu í febrúar 2019. Það var algjör draumaferð. Mikið að skoða en líka tími til að njóta staðanna, lítill og frábærlega góður hópur. Glæsilegir gististaðir og öll þjónusta til fyrirmyndar.

    Ég get heilshugar mælt með þessari ferð og væri alveg til í að fara aftur eða í aðra sambærilega með Obeo.

    Hjartans þakkir fyrir ógleymanlega ferð.

    Guðrún Eggertsdóttir

    Takk fyrir æðislega ferð. Namibía var fyrir mér ævintýralegur staður. Ég virkilega heillaðist af landinu og það stóðst allar mínar væntingar og meira til. Ég er sannfærð um að hafa valið bestu Namibíu-ferðina. Frábær upplifun í vel skipulagðri ferð! Anna Dóra

    Við Valur erum varla komin niður úr skýjunum ennþá og erum sammála um að ferðin öll hafi verið alveg frábær. Fyrst vil ég nefna einstaklega heillandi land, góða skipulagningu, skemmtilega gististaði og góðan mat og ekki má gleyma bílstjóranum okkar ljúfa. Rannveigu þökkum við fyrir að passa uppá okkur og gera ferðina ógleymanlega. Kristín Emilía Daníelsdóttir

    Namibíuferðin var í alla staði góð. Upplifunin af fólkinu, menningunni, náttúrunni, dýralífinu var stórkostleg. Hver dagur kom skemmtilega á óvart. Gisting og matur var miklu betra en við höfðum vænst fyrirfram. Alls staðar mætti okkur vinsemd og glaðværð og mikil þjónustulund starfsfólks. Birna, Eric, Johan eiga þakkir skildar fyrir frábæra skipulagningu á ævintýraferð. Okkur langar aftur!
    Guðný og Jón

    Þessi ferð var ótrúleg upplifun hvort sem horft er til náttúrufegurðar, dýralífs eða mannlífs. Maturinn sem kom mér skemmtilega á óvart. Þá var eftirtektarvert hversu allir sem við hittum voru glaðlegir og starfsfólk á öllum stöðunum sem við komum á var einstaklega kurteist og þjónustulundað. Ég vona að ég eigi eftir að komast aftur til Namibíu.

    Halldór

    Við fórum í ferð til Namibíu og síðar til Tanzaníu. Hreint frábærar ferðir. Ferðatilhögun fararstjórn og gististaðir eins og best var á kosið. Var ferðin dýr er spurt. Nei við fengum mikið fyrir peningana, mjög mikið. Viljum eiginlega bara ferðast með Obeo Africa. Takk. Guðmundur Benediktsson, Ingibjörg Faaberg

    Namibíuferðin sem við Hilmar fórum stóð frá 15.febr. til 2. mars 2019.  Lítill hópur en alveg einstaklega góður. Birna Guðbjörg Hauksdóttir var fararstjóri, fræðandi og skemmtileg. Allt skipulag var til fyrirmyndar, sama hvort við tölum um gistingu eða mat. Við vorum með sama bíl og bílstjóra alla ferðina, nema þegar farið var í ferðir þar sem við þurftum að vera á sérútbúnum bílum.  Namibía er land andstæðna, gróður og gróðurlausar saltsléttur, sandur og trjágróður til skiptis. Dýralífið er mjög fjölbreytt, stundum  sáum við dýrin við vatnsból, eitt af því eftirminnilegasta var að sjá fílahjörð koma þrammandi að vatnsbóli. Gististaðirnir eru líka eftirminnilegir, til dæmis þar sem starfsfólkið tók á móti okkur með söng eða þar sem þau kenndu okkur að læsa húsunum, læsingin var krókur og kengur.  Eða að heyra clic málið eða…..

    Mér finnst við vera mjög heppin að hafa farið í þessa ferð.

    Guðrún og Hilmar.

    Við hjónin fórum með Obeo Afrika til Namibíu 2022 og í 4ra landa ferðina árið 2024. Við getum heils hugar mælt með báðum þessum ferðum. Skipulag þeirra var einstaklega gott, gististaðir gaumgæfilega valdir og fararstjórarnir dásamlegir. Mikill kostur að nánast allt uppihald var innifalið í verði ferðanna og að ferðast var í litlum hópum. Við eigum stórkostlegar minningar úr ferðunum tveimur og munum fylgjast spennt með nýjum ferðum í boði Obeo Afika. Dóróþea og Viðar, Dalvík

    Ég veit ekki alveg hvar skal byrjað en ég er í 7 unda himni með þessa ferð. Það var allt sem gerði þessa ferð að því sem hún varð. Ferðafélagar dásamlegir, landið guðdómlegt, maturinn góður, gistingin stundum óraunveruleg ( hélt grínlaust að það yrði prins á koddanum í hinu rúminu næst þegar ég kæmi inn) , fallhlífastökkið geggjað og svo Rannveig mín þú gerðir ferðina að því sem hún varð, þ.e ÓGLEYMANLEG
    Ég er orðin áskrifandi af ferðum ykkar
    Kærleikskveðja og fullt af þakklæti
    Sigurveig Björgólfs

    Hvað get ég sagt? Ógleymanleg ferð til Namibíu, skemmtilegur hópur og leiðsögnin og skipulagningin algerlega frábær. Þessari ferð mun ég aldrei gleyma. Sjö stjörnum af fimm 🌞😎

    Ógleymanleg ferð til Namibíu, náttúrufegurðin kom verulega á óvart, dýralífið er stórfenglegt og mannlífið fjölbreytt. Maturinn er alveg meiriháttar og allur aðbúnaður á gististöðum mun betri en við eigum að venjast! (Og klósettaðstaða alls staðar fín, meira að segja á vegasjoppum!) Obeo á heiður skilið fyrir frábært skipulag og fararstjórn, takk, takk, Birna og fleiri. Við fengum mjög góða yfirsýn yfir menningu og sögu heimamanna. 13 þjóðarbrot búa í Namibíu og tungumálin eru 11 þó svo að enska sé hið opinbera tungumál sem kennt er í skólum. Allir eru stoltir af landi og þjóð og ákafir í að fræða hinn fávísa ferðamann. Alls staðar var tekið á móti okkur með brosi á vör þó svo að fátæktin væri víða átakanleg. Það rigndi hressilega á meðan ferð okkar stóð og allar eyðimerkur og sléttur voru óvenju grænar. Árfarvegurinn í Swakobmund fylltist af vatni en það hafði ekki gerst í 11 ár!
    Erum í skýjunum yfir að hafa uppgötvað og upplifað Afríku
    Erna

    Við komum heim eftir 19 daga ferð til Namibíu með brosið fast allan hringinn. Fádæma fallegt land, auðugt af fjölbreyttu dýralífi og ómetanlegt að upplifa það að sitja í nokkurra metra fjarlægð frá stærstu og hættulegustu rándýrum heims, sjá fíla, nashyrninga, krókódíla og flóðhesta sinna sínum málum í náttúrulegu umhverfi þeirra er bara ógleymanlegt. Menning þjóðflokkanna og fólkið sem við fengum að sjá og kynnast lítillega var heillandi og fengur að fá tækifæri til að heimsækja. Fararstjórinn okkar, hún Birna, þekkti land og þjóð frá því hún bjó þar um árabil og miðlaði af þekkingu sinni og reynslu. Henni til halds og trausts var síðan innlendi leiðsögumaðurinn og bílstjórinn sem sem vann hug og hjörtu allra í hópnum með viðmóti sínu og þekkingu á landi sínu og þjóð. Við fórum víða um Namibíu og gistum á sérbúnum gististöðum/hótelum inni á verndarsvæðum fyrir dýralíf. Aðbúnaður þar, þjónusta og þjónustulund var með því besta sem við höfum upplifað á ferðalögum og maturinn hreint afbragð. Árni E. Albertsson og Elínrós Eiríksdóttir