Hér er að finna nánari upplýsingar um gististaði Obeo Afríku. Við leggjum mikla vinnu í að handvelja gististaði okkar, og keppumst við að prófa alla gististaði sjálf, áður en við bjóðum gesti okkar velkomna. Gististaðir eru sannarlega stór partur af upplifun ferðar ykkar til Afríku og því vöndum við valið vel.

Crocodile Camp


Maun, Botswana


Veitingastaður, sundlaug, internet, heilsulind


Crocodile Camp Safari & Spa er staðsett við bakka Thamalakane árinnar í Maun Botswana. Þetta eru frábærar búðir fyrir aðgengi að dýralífi svæðisins, með auðvelt aðgengi inn í Moremi þjóðgarðinn.

Commodore Cape Town


Höfðaborg, Suður Afríku


Heilsulind, sundlaug, internet, veitingastaður, bar, líkamsrækt


Commodore Hótel í Höfðaborg er staðsett við Victoria & Alfred Waterfront, með útsýni yfir Borðfjall (Table Mountain), höfnina og Robben Island.
Commodore býður gæða þjónustu á einum besta stað Höfðaborgar.

Otjiwa


Otjiwa, Namibíu


Loftkæling, sjónvarp, eigin pallur við hvert herbergi, sundlaug, veitingastaður, bar, afþreying


Otjiwa hefur unnið hjörtu okkar frá upphafi. Það er sérstakt dýralíf að finna á þessu svæði og gæði búðanna frábær, ásamt vinalegu starfsfólki.

Mokuti


Austurhluti Etosha, Namibíu


Loftkæling, sjónvarp, veitingastaður, sundlaug, bar, skriðdýrasafn, tennisvöllur, heilsulind, líkamsræktarsalur, billjard, afþreying


Mokuti er fullkominn staður til að slaka á eftir ævintýri dagsins í Etosha þjóðgarðinum, staðsett einungis 4 min akstur frá austur hliðinu. Mokuti býður upp á hágæða þjónustu í notalegu umhverfi.

Okaukuejo


Etosha Suður, Namibíu


Veitingastaður, bar, minjagripabúð, bensínstöð, sundlaug, vatnsból, afþreying


Það allra besta við Okaukuejo búðirnar er vatnsbólið og því veljum við að gista hér til að geta notið þess að sitja í ró við vatnsbólið hjá dýralífinu.

Twyfelfontein


Damaraland, Namibíu


Loftkæling, sundlaug, veitingastaður, bar, afþreying


Twyfelfontein búðirnar eru upplifun í sjálfu sér. Hér er gist í einstökum búðum, byggðum í klettum svæðisins, með notalegri sundlaug og bar, sem er tilvalið að njóta þegar ekki er verið að ferðast um svæðið.

Hansa Hótel


Swakopmund, Namibíu


Internet, veitingastaður, bar


Hansa hótel er fullkomið hótel í hjarta bæjarins, rúmgóð herbergi, góð þjónusta og þægindin við að vera í miðbænum, ásamt því að geta rölt á ströndina meðan á dvöl stendur í Swakopmund.

Le Mirage


Sossusvlei, Namibíu


Heilsulind, loftkæling, sundlaug, heitur pottur, bar, mini bar, kaffi/te, veitingastaður, afþreying


Le Mirage Resort & Spa eru eitt af uppáhalds búðum okkar. Alveg einstök bygging, með eitt af bestu sundlaugum landsins og sólsetur í mögnuðu umhverfi.

River Crossing Lodge


Utan Windhoek, Namibíu


Loftkæling, sundlaug, sjónvarp, mini bar, veitingastaður, bar, afþreying


River Crossing Lodge eru frábærar búðir til að slaka á eftir langt flug, og safna kröftum fyrir komandi ævintýri. Hér er hægt að hvílast vel og stökkva í sundlaugina í hitanum.

Hafðu Samband





    UMSAGNIR

    Ógleymanleg ferð til Namibíu, náttúrufegurðin kom verulega á óvart, dýralífið er stórfenglegt og mannlífið fjölbreytt. Maturinn er alveg meiriháttar og allur aðbúnaður á gististöðum mun betri en við eigum að venjast! (Og klósettaðstaða alls staðar fín, meira að segja á vegasjoppum!) Obeo á heiður skilið fyrir frábært skipulag og fararstjórn, takk, takk, Birna og fleiri. Við fengum mjög góða yfirsýn yfir menningu og sögu heimamanna. 13 þjóðarbrot búa í Namibíu og tungumálin eru 11 þó svo að enska sé hið opinbera tungumál sem kennt er í skólum. Allir eru stoltir af landi og þjóð og ákafir í að fræða hinn fávísa ferðamann. Alls staðar var tekið á móti okkur með brosi á vör þó svo að fátæktin væri víða átakanleg. Það rigndi hressilega á meðan ferð okkar stóð og allar eyðimerkur og sléttur voru óvenju grænar. Árfarvegurinn í Swakobmund fylltist af vatni en það hafði ekki gerst í 11 ár!
    Erum í skýjunum yfir að hafa uppgötvað og upplifað Afríku
    Erna

    Við komum heim eftir 19 daga ferð til Namibíu með brosið fast allan hringinn. Fádæma fallegt land, auðugt af fjölbreyttu dýralífi og ómetanlegt að upplifa það að sitja í nokkurra metra fjarlægð frá stærstu og hættulegustu rándýrum heims, sjá fíla, nashyrninga, krókódíla og flóðhesta sinna sínum málum í náttúrulegu umhverfi þeirra er bara ógleymanlegt. Menning þjóðflokkanna og fólkið sem við fengum að sjá og kynnast lítillega var heillandi og fengur að fá tækifæri til að heimsækja. Fararstjórinn okkar, hún Birna, þekkti land og þjóð frá því hún bjó þar um árabil og miðlaði af þekkingu sinni og reynslu. Henni til halds og trausts var síðan innlendi leiðsögumaðurinn og bílstjórinn sem sem vann hug og hjörtu allra í hópnum með viðmóti sínu og þekkingu á landi sínu og þjóð. Við fórum víða um Namibíu og gistum á sérbúnum gististöðum/hótelum inni á verndarsvæðum fyrir dýralíf. Aðbúnaður þar, þjónusta og þjónustulund var með því besta sem við höfum upplifað á ferðalögum og maturinn hreint afbragð. Árni E. Albertsson og Elínrós Eiríksdóttir

    Namibíuferðin var í alla staði góð. Upplifunin af fólkinu, menningunni, náttúrunni, dýralífinu var stórkostleg. Hver dagur kom skemmtilega á óvart. Gisting og matur var miklu betra en við höfðum vænst fyrirfram. Alls staðar mætti okkur vinsemd og glaðværð og mikil þjónustulund starfsfólks. Birna, Eric, Johan eiga þakkir skildar fyrir frábæra skipulagningu á ævintýraferð. Okkur langar aftur!
    Guðný og Jón

    Þessi ferð var ótrúleg upplifun hvort sem horft er til náttúrufegurðar, dýralífs eða mannlífs. Maturinn sem kom mér skemmtilega á óvart. Þá var eftirtektarvert hversu allir sem við hittum voru glaðlegir og starfsfólk á öllum stöðunum sem við komum á var einstaklega kurteist og þjónustulundað. Ég vona að ég eigi eftir að komast aftur til Namibíu.

    Halldór

    Namibíuferðin sem við Hilmar fórum stóð frá 15.febr. til 2. mars 2019.  Lítill hópur en alveg einstaklega góður. Birna Guðbjörg Hauksdóttir var fararstjóri, fræðandi og skemmtileg. Allt skipulag var til fyrirmyndar, sama hvort við tölum um gistingu eða mat. Við vorum með sama bíl og bílstjóra alla ferðina, nema þegar farið var í ferðir þar sem við þurftum að vera á sérútbúnum bílum.  Namibía er land andstæðna, gróður og gróðurlausar saltsléttur, sandur og trjágróður til skiptis. Dýralífið er mjög fjölbreytt, stundum  sáum við dýrin við vatnsból, eitt af því eftirminnilegasta var að sjá fílahjörð koma þrammandi að vatnsbóli. Gististaðirnir eru líka eftirminnilegir, til dæmis þar sem starfsfólkið tók á móti okkur með söng eða þar sem þau kenndu okkur að læsa húsunum, læsingin var krókur og kengur.  Eða að heyra clic málið eða…..

    Mér finnst við vera mjög heppin að hafa farið í þessa ferð.

    Guðrún og Hilmar.

    Hvað get ég sagt? Ógleymanleg ferð til Namibíu, skemmtilegur hópur og leiðsögnin og skipulagningin algerlega frábær. Þessari ferð mun ég aldrei gleyma. Sjö stjörnum af fimm 🌞😎

    Ég var búin að skoða margar leiðir til að ferðast til Afríku þegar ég datt niður á Obeo, bókaði með þeim og sé alls ekki eftir því. Ferðin var frábærlega skipulögð og hver dagur eins og galdrar! Passað vel upp á alla og endalausir möguleikar til að verja frjálsum tíma. Hefði ekki getað huxað mér betri leið til að kynnast Afríku. Sjáumst fljótt 🙂 Árdís Bj. Jónsdóttir

    Við mamma (Hulda Vilhjálmsdóttir) fórum í Namibíuferð með Birnu í febrúar 2019. Það var algjör draumaferð. Mikið að skoða en líka tími til að njóta staðanna, lítill og frábærlega góður hópur. Glæsilegir gististaðir og öll þjónusta til fyrirmyndar.

    Ég get heilshugar mælt með þessari ferð og væri alveg til í að fara aftur eða í aðra sambærilega með Obeo.

    Hjartans þakkir fyrir ógleymanlega ferð.

    Guðrún Eggertsdóttir

    Það er margt hægt að segja um Namibíu. Dularfull, aðlaðandi, ógnvekjandi, spennandi, draumkennd, seiðmögnuð, tröllsleg, en umfram allt stórkostleg. Jóhann Sigurólason

    Við hjónin fórum með Obeo Afrika til Namibíu 2022 og í 4ra landa ferðina árið 2024. Við getum heils hugar mælt með báðum þessum ferðum. Skipulag þeirra var einstaklega gott, gististaðir gaumgæfilega valdir og fararstjórarnir dásamlegir. Mikill kostur að nánast allt uppihald var innifalið í verði ferðanna og að ferðast var í litlum hópum. Við eigum stórkostlegar minningar úr ferðunum tveimur og munum fylgjast spennt með nýjum ferðum í boði Obeo Afika. Dóróþea og Viðar, Dalvík

    Ég veit ekki alveg hvar skal byrjað en ég er í 7 unda himni með þessa ferð. Það var allt sem gerði þessa ferð að því sem hún varð. Ferðafélagar dásamlegir, landið guðdómlegt, maturinn góður, gistingin stundum óraunveruleg ( hélt grínlaust að það yrði prins á koddanum í hinu rúminu næst þegar ég kæmi inn) , fallhlífastökkið geggjað og svo Rannveig mín þú gerðir ferðina að því sem hún varð, þ.e ÓGLEYMANLEG
    Ég er orðin áskrifandi af ferðum ykkar
    Kærleikskveðja og fullt af þakklæti
    Sigurveig Björgólfs

    Við Valur erum varla komin niður úr skýjunum ennþá og erum sammála um að ferðin öll hafi verið alveg frábær. Fyrst vil ég nefna einstaklega heillandi land, góða skipulagningu, skemmtilega gististaði og góðan mat og ekki má gleyma bílstjóranum okkar ljúfa. Rannveigu þökkum við fyrir að passa uppá okkur og gera ferðina ógleymanlega. Kristín Emilía Daníelsdóttir