17 daga ævintýraferð til Namibíu

Namibíuferð okkar hefur vakið mikla lukku. Í henni færðu að upplifa það besta sem Namibía hefur að bjóða. Þjóðgarðar, stórbrotið landslag og náttúra, ótrúlegt dýralíf, fjölbreytt mannlíf, elsta eyðimörk í heimi, strandbærinn Swakopmund og hæstu sandöldur heims í Sossusvlei. 

Dagur 1 – Flug frá Keflavík

Dagur 2  – Koma til Namibíu, Windhoek

Dagur 3 – Sossusvlei

Dagur 4 – Sossusvlei

Dagur 5 – Swakopmund

Dagur 6 – Swakopmund

Dagur 7 – Swakopmund

Dagur 8 – Swakopmund

Dagur 9 – Damaraland

Dagur 10 – Damaraland

Dagur 11 – Etosha Suður

Dagur 12 – Etosha Austur (Onguma)

Dagur 13 – Etosha Austur (Onguma)

Dagur 14 – Otjiwa

Dagur 15 – Otjiwa

Dagur 16 – Brottför frá Namibíu

Dagur 17 – Koma til Íslands

Dagur 1 - Brottför

Flogið frá Keflavík til Windhoek í Namibíu með Lufthansa og Eurowings, með viðkomu í Frankfurt.

Lagt er af stað frá Keflavíkurflugvelli 1. febrúar, kl. 14:55 og lent í Windhoek morguninn eftir.

Dagur 2 - Komið til Namibíu

Lent að morgni í Windhoek þar sem íslenskur fararstjóri og innlendur bílstjóri hitta hópinn og verða með frá upphafi til loka ferðar.

Ekið verður í höfuðborgina, Windhoek, þar sem gist verður fyrstu nóttina og slakað á eftir langt flug. Það sem eftir er af deginum er frjáls tími, m.a. verður hægt að njóta lífsins við sundlaugina og þau sem vilja geta farið í skoðunarferð í borgina með fararstjóranum.

Kvöldverður snæddur í Windhoek.

 

 

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
H, K
43 km | u.þ.b. 45 mín akstur

Dagur 3 - Sossusvlei

Eftir morgunverð verður ekið til Le Mirage-búðanna á Sossusvlei-svæðinu í Namib-eyðimörkinni. Namib-eyðimörkin er þekkt fyrir stórar og gullnar sandöldur og þar eru nokkrar af stærstu sandöldum heims, allt að 320 metra háar.

Það sem eftir er af deginum er frjáls tími. Kvöldmatur snæddur í búðunum.

Le Mirage er hágæðagististaður stuttan spöl frá Sossusvlei-þjóðgarðinum sjálfum. Gististaðurinn er þekktur fyrir sérstæðan byggingarstíl sem fellur ótrúlega vel inn í eyðimörkina.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
330 km | u.þ.b. 5 klst

Dagur 4 - Sossusvlei & Deadvlei

Lagt er af stað snemma morguns í skoðunarferðir til að sleppa við mesta hitann. Morgunverður snæddur í búðunum áður en ferðin hefst. Ekið verður inn í Sossusvlei-þjóðgarðinn til að skoða sandöldurnar og fleiri áhugaverð fyrirbæri á svæðinu.

Hér er náttúrugersemi sem sagt er að sé mest myndaða sandalda heims, „Dune 45” á ensku. Í nágrenni Sossusvlei er Deadvlei (Dauðamýri) með uppþornaða leirsléttu sína og þar finnast fræg akasíutré sem eru um 900 ára gömul. Þau lifðu í um 300 ár en nú standa þau upp úr hvítri leirsléttunni, sólþurrkuð og dauð en ekki steingerð. Þaðan er nafnið „Deadvlei” dregið.

Þau sem vilja geta klifið eina af hæstu sandöldum heims og fengið magnað útsýni í verðlaun – yfir Deadvlei, sandöldurnar og jafnvel alla leið til Atlantshafsins. Eða farið styttri leið beint inn í Deadvlei og gengið þar á hvítri leirsléttunni, inn á milli trjánna, og það er alveg einstök upplifun. Göngur verða hafðar við hæfi hvers og eins og mögulega verður hópnum skipt upp.

Eftir ferðina í Deadvlei verður Sesriem-gljúfrið skoðað og síðan haldið til baka í búðirnar til að snæða síðbúinn hádegisverð. Athugið að hugsanlega ákveður fararstjóri að breyta tíma ferðar í Sesriem-gljúfrið, allt fer eftir veðri og vilja hópsins.

Við snæðum kvöldverð í búðunum, þar sem hægt er að sitja úti í eyðimerkurkyrrðinni, njóta fegurðarinnar og afríska sólsetursins.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
Hálfs dags skipulögð ferð
Sossusvlei, Deadvlei og Sesriem-Gljúfur

Dagur 5 - Swakopmund

Við snæðum morgunverð snemma því að framundan er löng og spennandi ferð í gegnum Namib Naukluft Park til Swakopmund á vesturströndinni. Namib Naukluft Park er stærsti þjóðgarður Afríku og í honum er elsta eyðimörk heims. Þar ökum við meðal annars framhjá stóru, gullnu sandöldunum, dáumst að Naukluft-fjallgarðinum, skimum eftir dýralífi og skoðum þekkt tré, sem nefnast „Quiver trees” á ensku og finnast aðeins í sunnanverðri Afríku. Enska heitið er dregið af því að frumbyggjar, sem nefnast búskmenn eða san-fólkið, notuðu greinar trjánna til að búa til örvamæla (e. quivers).

Við snæðum hádegisverð á heillandi stað sem heitir Solitaire og er í miðri eyðimörk mörg hundruð kílómetra frá næsta byggða bóli. Þar stutt frá er Steingeitarbaugur (Tropic of Capricorn), eða hvarfbaugurinn syðri, sú breiddargráða á jörðinni þar sem sól er í hvirfilpunkti við vetrarsólstöður.

Í Solitaire er bensínstöð, verslun, kapella og bakarí með kaffihúsi, sem er þekkt fyrir eplaböku sína, án efa þá „bestu í allri Namibíu“.

Staðurinn var stofnaður árið 1884. Nafnið er réttnefni því að Solitaire getur bæði þýtt einsemd og eingreypingur, eða gimsteinn sem er greyptur einn sér. Solitaire er svo sannarlega einstakur gimsteinn.

Það fyrsta sem vekur athygli gestsins þegar hann kemur til Solitaire er gnægð bílflaka sem skreyta vegarkantinn. Það er næstum eins og að ganga inn í Tinna-bók að koma að þessu einstaka bílasafni.

Kvöldin eru frjáls fyrir gesti sem geta rölt um bæinn og notið kvöldverðar á einhverjum af fjölmörgum veitingastöðum Swakopmund.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H
370 km | u.þ.b. 6 klst

Dagur 6 - Swakopmund

Swakopmund er svo sérstakur bær að erfitt er að lýsa honum í fáum setningum.  Bærinn liggur við ströndina þar sem Atlantshafið og Namib-eyðimörkin mætast og er frægur fyrir þýskt yfirbragð bygginga og götulífs.

Mikið úrval er af ævintýraferðum og afþreyingarkostum í Swakopmund. Fyrir þá ævintýragjörnu er í boði að fara í fallhlífarstökk með ótrúlegt útsýni yfir elstu eyðimörk í heimi, Atlantshafið og Swakopmund, aka fjórhjóli í eyðimörkinni, renna sér á sandbretti niður sandöldurnar, svo fátt eitt sé nefnt.

Ferðin „the little five” er mjög vinsæl, í henni er farið í eyðimörkina með reyndum leiðsögumanni til að skoða fánu hennar og flóru.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M

Dagur 7 - Swakopmund

Í dag er farið í skipulagða jeppaferð, „Sandwich Harbour”.

Í þessari ferð ökum við meðfram sjónum inn í eyðimörkina sem umlykur Swakopmund, undrumst fegurð bleikra saltsléttna, sem mynduðust á botni uppþornaðra vatna í eyðimerkurdældum, og dáumst að dýrðarsýninni sem blasir við okkur í Namib Naukluft-þjóðgarðinum „þar sem haf og sandöldur mætast“.  Á leiðinni verður dekrað við okkur með freyðivíni og alls konar snarli.

Leiðsögufólk okkar er skemmtilegt, frótt og hefur brennandi áhuga á heimalandi sínu og sögu þess. Þau koma úr ýmsum áttum með mismunandi bakgrunn en eiga öll það sameiginlegt að gjörþekkja flóru og fánu svæðisins og eru frábært sögufólk.

 

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M
U.þ.b. 5 klst. ferð
Sandwich Harbour

Dagur 8 - Swakopmund

Þrátt fyrir alla afþreyingarkostina sem eru í boði í Swakopmund má ekki gleyma að njóta verunnar í bænum, sem er þekktur fyrir afslappað umhverfi, þýska byggingarlist, góðan mat, vín og bjór.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M

Dagur 9 - Damaraland

Við snæðum morgunverð snemma því að framundan er löng og spennandi ferð frá Swakopmund til Damaralands, meðfram hinni frægu Beinagrindarströnd (e. Skeleton Coast).  Ströndin er fögur og dulúðug, hrjóstug eyðimörkin nær alla leið til sjávar þar sem kaldur Benguela-straumurinn mætir þurru og hlýju lofti Namib-eyðimerkurinnar og við það myndast þétt þoka sem getur náð langt út til sjávar og yfir skerjótta ströndina. Hún er þakin hvalabeinum og beinum dýra og manna sem hafa grafist í sandinn ásamt skipsflökum – réttnefnd kirkjugarður sjómanna og skipa. Þeir sjómenn sem komust í land eftir skipsstrand áttu langa leið fyrir höndum í vatnslausri eyðimörkinni og fæstir þeirra lifðu af þá þrautargöngu. Helsta von þeirra var að búskmenn finndu þá og aumkuðust yfir þá. Fyrir um 70 árum fannst rispað á flatan stein á ströndinni: „Ég held göngunni áfram að fljóti 60 mílur í norður og ef einhver skyldi finna þetta og fara á eftir mér þá mun Guð hjálpa honum. (‘I am proceeding to a river 60 miles north, and should anyone find this and follow me, God will help him.’)

Við snæðum hádegisverð í ferðinni og kvöldverð í búðunum.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
340 km | u.þ.b. 6 klst. akstur

Dagur 10 - Damaraland

Margt er að skoða á svæðinu og við eigum mikla upplifun í vændum í dag. Fyrir þá sem vilja verður í boði að skoða klettaristur San-búskmanna (ekki innifalið) með innlendum leiðsögumanni. Einnig er talsvert af klettaristum San-búskmanna í grennd við Twyfelfontein-búðirnar sjálfar, og svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO vegna þeirra.

Eftir hádegisverð í búðunum heimsækjum við Damara-ættbálkinn í lifandi safni hans. Vingjarnlegir Damarar taka á móti hópnum og fræða hann um lífshætti ættbálksins á lifandi og spennandi hátt. Þessi ferð vekur ætíð lukku enda er Damarafólkið einstaklega gestrisið og hefur yndi af því að kynna sögu sína og menningu með sögum, dans og söng.

Síðari hluta dags er farið í leit að eyðimerkurfíl, þeirri mögnuðu  dýrategund. Eyðimerkurfílar eru aðeins til í tveimur löndum í heiminum, Malí og Namibíu. Þeir hafa lagað sig að þessu harða umhverfi í áranna rás, eru ívið minni en afríkufíllinn, með stærri fætur og geta gengið langar leiðir daglega í leit að vatni. Öll villt dýr í Damaralandi lifa frjáls í náttúrulegu umhverfi sínu. Á leið til baka í búðirnar stoppum við á skemmtilegum stað til að njóta sólsetursdrykkjar.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
Damara-safnið & leit að eyðimerkurfílnum

Dagur 11 - Etosha Suður

Eftir morgunverð er haldið að hliði Etosha-þjóðgarðsins.

Etosha-þjóðgarður er fimmta stærsta náttúruverndarsvæði Afríku og hér væntum við þess að sjá gríðarlega fjölskrúðugt dýralíf. Við dveljum í þrjár nætur á svæðinu og markmiðið er safaríupplifun á hæsta stigi.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
330km | u.þ.b. 4,5 klst. akstur

Dagur 12 - Etosha Austur

Ekið verður til Etosha Austur þar sem gist verður í tvær nætur. Hádegisverður snæddur á leiðinni í búðirnar.

Við verjum deginum í að aka í gegnum Etosha-þjóðgarðinn og upplifa fjölskrúðugt dýralífið.

 

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
153km | heill dagur í safari
Heils dags safari á eigin bíl

Dagur 13 - Etosha Austur

Í dag er í boði að fara í skipulagða morgunferð um Etosha eða verndarsvæðið Onguma.

Reynslumiklir leiðsögumenn fara með okkur til að skoða fjölbreytt dýralífið í þjóðgarðinum. Algengast er að sjá gíraffa, sebra, fjölmargar antilópur, ljón og fjölda annarra dýrategunda og fugla.

Hádegismatur verður snæddur í búðunum að ferð lokinni.

Kvöldverður einnig snæddur í búðunum.

 

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
Hálfs dags safari

Dagur 14 - Otjiwa

Ekið verður til Otjiwa-búðanna sem eru á náttúruverndarsvæði. Þar sem búðirnar eru mitt á milli Etosha og Windhoek eru þær fullkominn staður til að hefja eða enda ævintýraferð um Namibíu.

Otjiwa-búðirnar bjóða upp á öll nútímaþægindi og framúrskarandi þjónustu. Það sem er sérstakt við Otjiwa er fjöldi nashyrninga á svæðinu og því er kjörið að skella sér í ferð í leit að áhugaverðum dýrum, þá sérstaklega nashyrningum. Í Otjiwa er hægt að njóta kvöldverðar utandyra, ásamt því að skella sér í laug til að hressa sig þegar hitinn er mestur.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
320km | u.þ.b. 4 klst. akstur

Dagur 15 - Otjiwa

Við höfum fyrri hluta dagsins til að njóta Otjiwa og hvíla okkur fyrir langt flug heim daginn eftir.

Síðari hluta dagsins förum við í aðra skipulagða safaríferð, sem miðast að því að skoða nashyrninga. Þetta er einstök upplifun því að safaríferðin er farin fótgangandi! Það er ógleymanleg upplifun að rölta um í Otjiwa í leit að nashyrningum og njóta náttúrunnar.

Við snæðum hádegisverð og kvöldverð í búðunum.

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H, K
Hálfs dags safaríferð og sólsetursdrykkur

Dagur 16 - Brottför

Morgunverður snæddur í rólegheitum. Lagt af stað til Windhoek fyrir flug til Íslands kl. 19:55.

 

Gisting Máltíðir Akstur Innifaldar ferðir
M, H
260 km | u.þ.b. 3,5 klst. akstur

Dagur 17 - Heimkoma

Lent á Íslandi eftir ævintýralega 17 daga ferð, klukkan 13:55 þann 17 febrúar.

Hafðu Samband