4 Landa Ferð
Suður Afríka, Botsvana, Simbabve og Sambía. Upplifðu töfra Höfðaborgar, einstaklega fjölskrúðugt dýralíf Botsvana og, síðast en ekki síst, skynjaðu orku Viktoríufossa í Simbabve og Sambíu
Dagur 1 – Brottför
Dagur 2 – Komið til Suður-Afríku
Dagur 3 – Höfðaskagi, Suður Afríka
Dagur 4 – Vínekrur Suður-Afríka
Dagur 5 – Frjáls dagur í Höfðaborg
Dagur 6 – Flogið til Botsvana
Dagur 7 – Moremi, Botsvana
Dagur 8 – Útsýnisflug yfir Okavango Delta
Dagur 9 – Chobe í Botsvana
Dagur 10 – Chobe í Botsvana
Dagur 11 – Viktoríufossar, Simbabve
Dagur 12 – Viktoríufossar, Simbabve
Dagur 13 – Viktoríufossar, Simbabve
Dagur 14 – Viktoríufossar, Sambía
Dagur 15 – Viktoríufossar, Sambía
Dagur 16 – Brottför
Dagur 17 – Heimkoma

Dagur 2 - Komið til Suður-Afríku
Lent snemma morguns í Höfðaborg, þar sem fararstjóri tekur á móti hópnum ásamt bílstjóra sem verður með okkur í Suður-Afríku. Við komu verður farið beint á “Waterfront”, í hafnarhverfið fræga, og hádegisverður snæddur. Eftir málsverðinn gefst tími til að innrita sig á hótelið og slaka á fyrir ferð á Borðfjall (Table Mountain).
Við hittumst seinni partinn til að fara á Borðfjall, frægt stapafjall sem gnæfir yfir Höfðaborg. Við förum með kláfi á tindinn, þar sem tími gefst til að njóta magnaðs útsýnis yfir borgina. Við njótum sólsetursdrykkjar og snarls á fjallinu.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
H, K
|
25 km | u.þ.b. 45 min. akstur frá flugvelli
|
Borðfjall (Table Mountain)
|
Dagur 3 - Höfðaskagi (Cape Peninsula)
Eftir morgunverð er farið á Höfðaskaga (Cape Peninsula). Ekið er meðfram fallegum strandbæjum – Camps Bay, Clifton, Hout Bay og Chapmans. Allir þessir bæir eru þekktir fyrir einstakar strendur.
Við höfum viðkomu á einum besta útsýnisstað Suður-Afríku, Cape Point, þar sem við njótum þess að skoða stórbrotna náttúruna.
Um hádegi förum við til Simonstown til að fara á Boulders-strönd, sem er einkar falleg, ein af vinsælustu ströndum Höfðaborgar og eini staðurinn í heiminum þar sem hægt er að komast nálægt afrískum mörgæsum.
Boðið verður upp á hádegisverð á leiðinni.
Þriggja rétta kvöldverður með menningarlegu ívafi verður að lokum snæddur í Höfðaborg.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
Allur dagurinn í skipulagðri ferð
|
Höfðaskagi
|
Dagur 4 - Vínekrur Suður-Afríku
Eftir morgunverð verður haldið í heilsdagsferð frá Höfðaborg til nokkurra af fjölmörgum vínekrum Suður-Afríku.
Við rætur Boland-fjalla liggur vínekruhéraðið Cape Winelands, sem er víðfrægt fyrir nokkur af bestu vínum heims. Við heimsækjum bæinn Stellenbosch, sem er þekktur háskólabær, umvafinn fjöllum og vínekrum.
Næst upplifum við þrjár vínekrur með öllum skilningarvitunum, með vínsmökkun og fræðslu. Nöfn vínekranna verða staðfest á staðnum.
Boðið er upp á hádegisverð á leiðinni.
Kvöldverður í Höfðaborg.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
Heill dagur
|
Vínekrur Suður-Afríku
|
Dagur 5 - Frjáls dagur í Höfðaborg
Í dag er frjáls tími í Höfðaborg og fjölmargt er í boði á þeim magnaða stað.
M.a. er hægt að bóka sig í ferð til Robben Island þar sem Nelson Mandela var haldið í 18 ár af 27 ára fangelsistíma hans, klífa fjallið Lion‘s Head eða jafnvel fara í golf. Fararstjóri verður til staðar til að aðstoða við bókanir.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M
|
|
|
Dagur 6 - Flogið til Botsvana
Flogið er frá Höfðaborg til bæjarins Maun í Botsvana klukkan 10:35. Við lendum kl. 13:10 í Maun. Þegar við komum þangað hittum við bílstjóra sem ekur okkur inn í hjarta landsvæðis sem nefnist Okavango Delta, eða óshólma Okavangofljóts. Nú taka við tvær ævintýralegar nætur í einstökum tjaldbúðum, sem voru settar upp sérstaklega inni í þjóðgarðinum til að gera okkur kleift að njóta feikilega fjölskrúðugs dýralífs á svæðinu.
Safarítjaldbúðir.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
U.þ.b. 3 klst akstur frá flugvelli til tjaldbúða
|
Safaríferð á leiðinni í búðirnar
|
Dagur 7 - Moremi
Í dag njótum við dýralífsins í Moremi-þjóðgarðinum, í Okavango Delta, beint frá tjaldbúðunum.
Í boði verða tvær hálfs dags safaríferðir inni í þjóðgarðinum.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Heill dagur í safarí
|
Dagur 8 - Flogið með einkavél til Chobe
Frá þjóðgarðinum ökum við að næsta flugvelli og förum þar í einkaflugvél sem fer með okkur til Kasane. Flugið býður upp á magnað útsýni yfir víðfrægt votlendi Okavango Delta.
Þegar við komum í búðirnar er í boði að fara í skipulagða ferð inn í Chobe-þjóðgarðinn í leit að áhugaverðum dýrum (innifalið). Í þetta skipti förum við í siglingu. Það er skemmtileg tilbreyting að fara í slíka safaríferð á vatninu, býður upp gerólíka sýn á dýralífið og er sérstaklega gaman að fylgjast með fílunum sem leika sér og baða sig í vatninu.
Kvöldverður snæddur í búðunum.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
U.þ.b. 1 klst útsýnisflug
|
Útsýnisflug og 1 safaríferð í Chobe
|
Dagur 9 - Chobe í Botsvana
Fyrir og eftir hádegi gefst kostur á að fara í tvær skipulagðar ferðir inn í Chobe til að skoða dýralífið í þessum einstaka þjóðgarði. Hann er rómaður fyrir að bjóða upp á einhverjar áhugaverðustu safaríferðir sem völ er á í heiminum. Yfir 75 dýrategundir eru á svæðinu og algengt er að finna gíraffa, afríska buffla, hlébarða, blettatígra og antílópur sem nefnast Bushbucks, ásamt ótölulegum fjölda annarra dýra- og fuglategunda.
Miklar líkur eru á að sjá heilu fílahjarðirnar.
Kvöldverður snæddur í búðunum.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
2 safaríferðir í Chobe
|
Dagur 10 - Chobe í Botsvana
Í dag er farið í safarí fyrir þá sem vilja, annaðhvort með bíl eða bát.
Eftir hádegi gefst svo frjáls tími til slökunar við sundlaugina, nota heilsulindina, eða velja sér aðra ferð til að njóta, til dæmis menningarferð eða heimsækja brúnna þar sem þú getur séð 4 lönd mætast.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
1 x safaríferð í Chobe
|
Dagur 11 - Viktoríufossar, Simbabve
Eftir morgunverð höldum við yfir landamærin til Simbabve. Næsti áfangastaður eru Viktoríufossarnir mikilfenglegu. Misjafnt er hversu vel gengur að komast yfir landamærin og því getum við ekki sagt nákvæmlega hversu langan tíma tekur að komast að Viktoríufossum. Aksturinn sjálfur er ekki nema um 1-2 tímar.
ATH: Íslendingar þurfa vegabréfsáritun til að komast til Simbabve og við sjáum um það á landamærunum en kostnaður er ekki innifalinn. Gera má ráð fyrir að áritunin kosti um það bil 55 Bandaríkjadali á mann.
Eftir komu í hótelið verður hádegisverður snæddur þar og að honum loknum er dagurinn frjáls.
Við munum síðan njóta snemmbúins kvöldverðar áður en haldið er í menningar leikhúsið “Spirit of Africa”

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
84 km | u.þ.b. 2 klst. akstur
|
Menningar leikhússýning
|
Dagur 12 - Viktoríufossar, Simbabve
Eftir morgunverð er farið í skipulagða ferð um Viktoríufossa. Við förum með innlendum leiðsögumanni þar sem við munum þræða alla 16 útsýnispunkta fossana til að upplifa mikilfengleika þeirra.
Að loknum hádegisverði í búðunum er frjáls tími og hægt er að velja um fjölda afþreyingarkosta á svæðinu eða bara slaka á og njóta sundlaugarinnar. Við mælum einstaklega með því að bóka þyrluflug yfir fossana (ekki innifalið)

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Viktoríufossar
|
Dagur 13 - Viktoríufossar, Simbabve
Þetta er frjáls dagur til að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Hægt er að bóka fjöldann allan af ferðum, til dæmis þyrluflug yfir fossana, flúðasiglingu, zipplínuævintýri, teygjustökk, fílasafarí og margt fleira.
Um kvöldið höldum við í sólseturssiglingu á ánni Zambezi, fyrir ofan fossana.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Sólseturssigling
|
Dagur 14 - Viktoríufossar, Sambía
Eftir morgunverð er farið yfir til Sambíu.
Við landamærin munum við stimpla okkur út úr Simbabve, rölta yfir brúnna og stimpla okkur inn í Sambíu. Við komu til Sambíu förum við inn í þjóðgarðinn fyrir Viktoríufossana til að upplifa þá þeim megin. Það er sérstök upplifun að sjá fossana frá báðum löndunum. Eftir gönguna verður svo haldið til hótelsins og notið 5* lúxus gistingar síðustu tvær nætur ferðarinnar.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
8.5 km | u.þ.b. 20 min akstur
|
Viktoríufossar Sambíu megin
|
Dagur 15 - Viktoríufossar, Sambía
Ganga með nashyrningum
Gönguferð með hvítum nashyrningi í Mosi O Tunya þjóðgarðinum í Sambíu, sem býður upp á einstakt tækifæri til að sjá þessar stórkostlegu skepnur í sínu náttúrulega umhverfi. Nashyrningar eru í mikilli útrýmingarhættu og því verður þessi upplifun enn dýrmætari þar sem við erum að styrkja mikilvægt verndunarstarf með komu okkar á sama tíma og við erum að njóta þess að vera með dýrunum á þeirra forsendum. Þetta er um 3 tíma ferð í heild.

Gisting | Máltíðir | Akstur | Innifaldar ferðir |
---|---|---|---|
M, H, K
|
|
Ganga með nashyrningum
|