Safarihoek er kyrrlátur og stílhreinn hágæða gististaður í einkareknu friðlandi, staðsettur á hæð nálægt hinum fræga Etosha-þjóðgarði.
Smáhýsin 11 eru glæsileg og vel búin með 180 gráðu óheftu útsýni yfir landslagið og vatnsbólið. Þjónustan og maturinn er í sérflokki, sundlaug, útibar og útsýni frá bæði hverju smáhýsi og aðalbyggingunni, yfir hinar hrjóstugu sléttur norðvestur hluta Namibíu.
Eyddu tíma í ljósmyndabyrginu við vatnsbólið. Það er ekki bara fyrir ljósmyndara heldur býður upp á mikla nálægð við hið villta dýralíf Namibíu.
Upplifðu Afríkukyrrðina í afskekktum hluta Namibíu með enga byggð í nágrenninu; Safarihoek er staður fyrir kyrrð og magnað sólsetur í víðfeðmu umhverfi sléttunnar þar sem fjölbreytt dýralíf reikar um frjálst og óhindrað.