Bagatelle er hágæða gististaður staðsettur á útjaðri Kalahari eyðimerkurinnar, og leggur mikla áherslu á náttúru- og dýravernd.
Hin fræga Kalahari eyðimörk nær yfir stórbrotið landslag með litlum rauð-appelsínugulum sandöldum. Eyðimörkin teygir sig yfir Botswana, Angóla, Namibíu og Suður Afríku, er yfir 900 000 ferkílómetrar að stærð.
Möguleiki er að upplifa fjölmargar tegundir dýra og fugla í Bagatelle og hvað er sérstakara en að horfa á antilópur, sebrahesta, strúta, jarðketti (meerkat) eða blettatígra innan um hinar sérstöku rauðgulu sandöldur.
Eða sitja á kvöldi til í eyðimerkurkyrrðinni og horfa á hið fræga afríska sólsetur.
Eða láta San Bushmen kynna þér fornar hefðir sínar.
Á sama tíma er um að gera að njóta hinnar einstöku gestrisni, frábærs matar og úrval drykkja á Bagatelle.
Frábær gististaður byggður í afrískum arkitektúr, þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði.