Jock Safari Lodge – Villt, ósnortið, ógleymanlegt!
Jock Safari Lodge er staðsett í suðvesturhorni Kruger þjóðgarðsins þar sem Mitomeni og Biyamiti árnar renna í eitt. Gististaðurinn býður upp á 6.000 hektara verndarsvæði sem er frægt fyrir “hina stóru fimm” (the big five).
Það eru aðeins 12 smáhýsi á gististaðnum, öll umkringd gróskumiklum trjám og reyrveggjum, hvert með sína eigin verönd, sem gefur tilfinningu um frið og nálægð við stórbrotna náttúruna.
Þetta er einstakur staður, þjónusta og matur í sérflokki, frábærir möguleikar fyrir dýra- og fuglaskoðun og stjörnuskoðun. Og um að gera að panta sér meðferð á hinu yndislega Spa.
Safariakstur er í yfirbyggðum 4×4 Landroverum undir stjórn mjög reyndra landvarða í hinum goðsagnakennda Kruger-þjóðgarði.
Jock Main Lodge
Kruger
Bar
Wifi
Sundlaug
Veitingastaður
Heilsurækt
Heilsulind (spa)
Loftkæling