Otjiwa búðirnareru staðsettar á náttúruverndarsvæði. Staðsetning búðanna er á milli Etosha og Windhoek, og er hinn fullkomni staður til að byrja eða enda ævintýri Namibíu á.
Otjiwa býður upp á öll nútímagæði og framúrskarandi þjónustu. Það sem er sérstakt við Otjiwa, er fjöldi nashyrninga á svæðinu og því kjörið að skella sér í ferð í leit að hinum ýmsu dýrum, þá sérstaklega nashyrningum. Otjiwa býður upp á að njóta kvöldverðar utandyra, ásamt því að vera með hressandi laug til að skella sér í, yfir mesta hita dagsins.